Um DS Bókhald

DS Bókhald var stofnað árið 2020 af systkinunum Dagbjörtu og Davíð með það markmið að bjóða upp á einfalda, skýra og persónulega bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki.

Við erum bæði viðurkenndir bókarar;
Davíð útskrifaðist árið 2019 og Dagbjört árið 2023. Saman sameinum við reynslu og uppfærða þekkingu, með áherslu á fagmennsku, nákvæmni og skýr samskipti.

Við erum tvö sem vinnum á skrifstofunni og það gerir okkur kleift að veita persónulega þjónustu og halda utan um hvert verkefni af alúð. Hjá DS Bókhaldi veistu alltaf hver sér um bókhaldið þitt og getur treyst á stöðugleika og góða yfirsýn.

Markmið okkar er að einfalda reksturinn fyrir þig, svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli – á meðan við sjáum um tölurnar.

Davíð Ingþór Sigurðsson
Dagbjört Nótt Sigurðardóttir