DS Bókhald
Bókhald sem þú skilur —
þjónusta sem þú treystir.
Við hjálpum fyrirtækjum með daglegt bókhald, launavinnslu, ársreikninga og skil — faglega, skýrt og á réttum tíma.
Allt frá daglegu bókhaldi til ársreikninga - við erum með þetta.
Bókhaldsþjónusta
Við sjáum um daglega færslu bókhalds og skilum virðisaukaskatti á réttum tíma. Með faglegri þjónustu tryggjum við að reksturinn standist allar kröfur skattyfirvalda og þú hafir góða yfirsýn yfir fjárhag fyrirtækisins.
Launavinnsla
Við sjáum um alla þætti launavinnslu – frá útreikningi launa, launaseðla og gerð skilagreina á opinberum gjöldum. Þannig getur þú einbeitt þér að rekstrinum, vitandi að launamálin eru í öruggum höndum.
Ársreikningar -
Stofnun félaga
Við útbúum ársreikninga og sjáum um gerð og skil skattframtala fyrir fyrirtæki. Öll vinna er unnin faglega og í samræmi við gildandi lög og reglur. Við aðstoðum einnig við að stofna ný fyrirtæki og skráningu á VSK- og launagreiðendaskrá.
UM OKKUR
Traust bókhaldsþjónusta með persónulegum samskiptum
DS Bókhald var stofnað árið 2020 af systkinunum Dagbjörtu og Davíð með það markmið að bjóða upp á einfalda, skýra og persónulega bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki.
Við erum bæði viðurkenndir bókarar;
Davíð útskrifaðist árið 2019 og Dagbjört árið 2023. Saman sameinum við reynslu og uppfærða þekkingu, með áherslu á fagmennsku, nákvæmni og skýr samskipti.
Við erum tvö sem vinnum á skrifstofunni og það gerir okkur kleift að veita persónulega þjónustu og halda utan um hvert verkefni af alúð. Hjá DS Bókhaldi veistu alltaf hver sér um bókhaldið þitt og getur treyst á stöðugleika og góða yfirsýn.
Markmið okkar er að einfalda reksturinn fyrir þig, svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli – á meðan við sjáum um tölurnar.
Við tökum vel á móti þér
Sendu okkur fyrirspurn og við finnum lausn sem hentar þínum rekstri.
Ármúli 19
108 Reykjavík
Netfang
dsbokhald@dsbokhald.is
Sími
+354 564 - 5400